Sendingarkostnaður
Afhending vöru og sendingarkostnaður
Sendingarkostnaður bætist við pöntun áður en greiðsla fer fram. Hægt er að velja um sendingu með Íslandspósti eða Dropp. Ef pantað er með Íslandspósti er hægt að velja að sækja sendingu á næsta pósthús á 595 kr., heimsendingu upp að dyrum á 1.190 kr. eða sendingu í póstbox á 495.kr. Íslandspóstur sækir vörur til okkar klukkan 15:00. Pantanir sem berast fyrir klukkan 14:30 leggja afstað til kaupanda samdægurs á virkum dögum.
Ef pantað er með Dropp er hægt að velja að sækja á afhendingarstað Dropp á 490 kr. eða fá heimsent með Dropp á 999 kr. Dropp sækir vörur til okkar um klukkan 12:30 alla daga vikurnar nema sunnudaga. Pantanir sem berast fyrir það leggja afstað til kaupanda samdægurs alla daga nema á sunnudögum.
Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Svens ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Svens til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. 30