Um nikótín, snus og Svíþjóð

Sænska leiðin

Sænskir snus framleiðendur framleiða undir lögum og reglugerð frá sænska matvælaeftirlitinu og lýta ströngu eftirliti. Það sem sett er í snus og nikótínpoka er því í samræmi við matvöruframleiðslu. Þess ber þó að geta að það er umræða um hvort að framleiðsla nikótínpoka, sem í daglegu tali er ”white snus” eða ”pokar”, eigi einnig að falla undir matvælaeftirlitið. Þrátt fyrir það fara framleiðendurnir sem Sven býður upp á eftir sömu reglum við framleiðslu þessara poka.

Notkun á snus í Svíþjóð á sér langa sögu og því mikil uppsöfnuð reynsla þegar kemur að framleiðslu, eftirliti og rannsóknum á mögulegum skaðlegum þáttum snus notkunar. Hér að neðan er hægt að lesa meira um rannsóknir og samanburð á notkun tóbaks í ýmsu formi.

Í stuttu máli þá kemur Svíþjóð almennt vel út í alþjóðlegum samanburði og getum við sagt að Sven treysti gæðum og aðgát sænska eftirlitisins.

Notkun nikótíns eða nikótínpoka

Nikótín er mjög ávanabindandi efni. Engar rannsóknir hafa sýnt fram á að nikótín eitt og sér valdi neinum sjúkdómum en ljóst er að neytandinn þarf að nota almenna skynsemi þegar kemur að ákvörðun á magni á inntöku efnisins.

Ekki er ráðlegt að neyta meira en 100 mg á dag af nikótíni fyrir fullorðinn einstakling. Skv. sænskum rannsóknum er upptaka líkamans úr einum poka á milli 20-50% af nikótínmagni hans.

Nikótínpokar í stað reykinga

Snus eða nikótínpúðar geta dregið úr fráhvarfseinkennum þegar reykingum er hætt eða noktun tóbaks almennt. Það minnkar því hættu á að reykingafólk sem vill hætta að reykja eða þeir sem vilja hætta munntóbaki/neftóbaki, byrji aftur á tóbaksneyslunni eða auðveldar þeim sem vilja ekki eða geta ekki hætt tóbaksneyslu, að draga úr henni. Þegar fólk hættir snögglega að innbyrða nikótín úr tóbaki framkallar líkaminn margskonar vanlíðan sem kallast fráhvarfseinkenni. Með nikótínpúðum er hægt að koma í veg fyrir eða draga úr þessum vanlíðan með því að halda áfram að útvega líkamanum nikótín í skamman tíma.

Ekki má nota Nikótínpúða:
  • ef um er að ræða ofnæmi fyrir nikótíni eða öðru innihaldsefni púðanna
    (sjá innihaldslýsingu á hverri vöru fyrir sig)
  • ef þú ert með alvarlegan hjartasjúkdóm
  • ef þú hefur nýlega (innan 3 mánaða) fengið hjartaáfall eða hjartaslag
Varnaðarorð og varúðarreglur

Leitið ráða hjá læknum áður en nikótín eru notað ef um er að ræða:

  • hjarta- eða blóðrásarsjúkdóma
  • ómeðhöndlaðan háþrýsting
  • alvarlegan lifrarsjúkdóm
  • alvarlegan nýrnasjúkdóm
  • sykursýki og notkun insúlíns
  • magasár
  • ofvirkan skjaldkirtil
  • æxli í nýrnahettu (krómfíklaæxli)

Ef þú ert með einhvern af ofantöldum sjúkdóma getur verið að ekki sé óhætt fyrir þig að neyta nikótíns.

Meðganga og brjóstagjöf

Ráðlagt er að hætta tóbaks- og nikótínneyslu á meðgöngu, þar sem slík notkun getur valdið minni vexti hjá barninu. Hún getur einnig valdið fæðingu fyrir tímann og jafnvel andvana fæðingu. Ef ekki er mögulegt að hætta slíkri neyslu skal nikótín aðeins notað í samráði við heilbrigðisstarfsmanninn sem hefur eftirlit með meðgöngunni. Forðast skal notkun nikótíns samhliða brjóstagjöf, þar sem nikótín finnst í brjóstamjólk og getur haft áhrif á barnið.

Börn og unglingar

Einstaklingar yngri en 18 ára eiga og mega ekki nota nikótínpúða.

Ráðlagður skammtur handa fullorðnum getur valdið alvarlegri eitrun og jafnvel reynst banvænn litlum börnum. Því er mjög nauðsynlegt að geyma nikótínpúða alltaf þar sem börn hvorki ná til né sjá.

 
 

Notkunarskilmálar

Aldurstakmark

Í öllum okkar verslunum er 18 ára aldurstakmark. Komist upp að viðskiptamaður hafi ekki náð tilskildum aldri eftir að sala hefur verið framkvæmd í verslun eða á vefsíðu okkar verður vara ekki afhent og verður greiðsla bakfærð að fullu eftir að foreldri eða forráðamaður hefur verið upplýstur um málið.

Afhending vöru og sendingarkostnaður

Sendingarkostnaður bætist við pöntun áður en greiðsla fer fram. Hægt er að velja um sendingu á næsta pósthús á 595 kr., heimsendingu upp að dyrum á 1.190 kr. eða sendingu í póstbox á 495.kr. Íslandspóstur sækir vörur til okkar klukkan 15:00. Pantanir sem berast fyrir klukkan 14:45 leggja afstað til kaupanda samdægurs á virkum dögum.

Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Svens ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Svens til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Greiðslur í vefverslun

Allar greiðslur sem framkvæmdar eru í gegnum vefverslun fara í gegnum örugga greiðslugátt Rapyd greiðslumiðlun og geymir Svens ekki neinar kortaupplýsingar eða lykilorð.

Verð

24% virðisaukaskattur er innifalinn í verði vörunnar. Öll verð eru birt með fyrirvara um myndbrengl eða prentvillur og áskilur Svens sér rétt til að hætta við viðskiptin hafi rangt verð verið gefið upp.

Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast hafið samband við Svens með spurningar á [email protected].

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Persónuverndarstefna

Skilmálar Svens um notkun á vafrakökum („cookies“)
Athugið að svens.is er hýst hjá Shopify og því gilda einnig skilmálar

Hvað eru vafrakökur?

Vafrakökur eru agnarsmáar textaskrár sem eru geymdar í vafraranum þínum. Vafrakökur eru notaðar í margvíslegum tilgangi, þar á meðal til þess að bæta virkni vefsíðna, til greiningar á notkun vefsíðna og til að beina auglýsingum til ákveðinna hópa eða einstaklinga. Vafrakökur geta innihaldið texta, númer eða upplýsingar eins og dagsetningar, en þar eru engar persónuupplýsingar um notendur geymdar.

Notkun Svens á kökum

Með því að samþykkja skilmála Svens um notkun á vafrakökum er Svens m.a. veitt heimild til þess að:

  • Bera kennsl á notendur sem hafa komið áður á vefinn og sníða leit og þjónustu við gestina til samræmis við auðkenninguna.
  • Að gera notendum auðveldara að vafra um vefsvæðið, til dæmis með því að muna eftir fyrri aðgerðum.
  • Að þróa og bæta þjónustu vefsvæðisins með því að fá innsýn í notkun hennar.
  • Að birta notendum auglýsingar

Svens notar einnig þjónustur þriðja aðila til að greina umferð um vefinn, mæla virkni auglýsinga og til að birta gestum sérsniðnar auglýsingar. Til dæmis má nefna Google Analytics frá Google og Facebook Pixel frá Facebook. Analytics og Pixel safna upplýsingum nafnlaust og gefa skýrslur um þróun á vefsvæðum án þess að greint sé frá stökum notendum eða persónuupplýsingum. Google Analytics og Facebook Pixels notar sínar eigin kökur til að fylgjast með samskiptum gesta við vefsvæði. Á grundvelli þess áskilur Svens sér rétt til að birta notendum auglýsingar í gegnum endurmarkaðssetningarkerfi þessara þriðju aðila.

Geymslutími

Kökur eru geymdar í allt að 24 mánuði frá því að notandi heimsækir vefsvæði Svens.

Slökkva á notkun á kökum

Notendur geta og er ávallt heimilt að stilla vafrann sinn þannig að notkun á kökum er hætt, þannig að þær vistast ekki eða vefvafrinn biður um leyfi notenda fyrst. Slíkar breytingar geta dregið úr aðgengi að tilteknum síðum á vefsvæðinu eða vefsvæðinu í heild sinni og getur haft neikvæð áhrif á heildarvirkni.

Leiðbeiningar um hvernig megi slökkva á kökum eða breyta stillingum um vafrakökur má finna á vefsíðu þíns vafra eða www.allaboutcookies.org.

Meðferð Svens á persónuupplýsingum

Meðferð á persónuupplýsingum fer samkvæmt gildandi lögum um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga eins og þau eru á hverjum tíma hér á landi.

Persónuupplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila nema lög kveði á um annað.

Sendingarkostnaður

Afhending vöru og sendingarkostnaður

Sendingarkostnaður bætist við pöntun áður en greiðsla fer fram. Hægt er að velja um sendingu á næsta pósthús á 595 kr., heimsendingu upp að dyrum á 1.190 kr. eða sendingu í póstbox á 495.kr.  Íslandspóstur sækir vörur til okkar klukkan 15:00. Pantanir sem berast fyrir klukkan 14:45 leggja afstað til kaupanda samdægurs á virkum dögum.

Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Svens ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Svens til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. 

Skilaréttur

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast hafið samband við Svens með spurningar á [email protected].